Gaman að þú skyldir villast hingað inn í þennan litla part af frumskógi internetsins.
Frekar mikil tilviljun ef þú spyrð mig, spurning um að gera sem mest úr því?
En hvernig læt ég, ég fæ svo sjaldan gesti að mannasiðir koma mér erfiðlega...
### Hver er ég?
Ég heiti Kjartan Þórisson, fæddur 1995 í Reykjavík og alinn þar upp með nokkrum mislöngum stoppum í Barcelona, Þýskalandi og Kópavogi.
Ég er framkvæmdaglaður og líklega smá ofvirkur frumkvöðull, en ég hef verið að forrita og byggja upp fyrirtæki frá því að ég var 17 ára. Í dag er ég framkvæmdastjóri Noona Labs: hugbúnaðarfyrirtæki sem rekur markaðstorgið Noona og viðskiptaumsjónarkerfið Noona HQ.
En undir þessari skel er ég einfaldlega innilega áhugasamur um "hið góða líf", og þá sérstaklega hvernig er hægt að blanda saman leitinni að fjárhagslegu frelsi við löngun til þess að hafa jákvæð áhrif og að lifa góðu lífi – með öllu sem því fylgir.
Hvernig finnur maður jafnvægi á milli vinnu, heilsu, fjölskyldu, vina og áhugamála? Hvernig finnur maður innri frið í miðjunni á þessu öllu? Hvað skiptir raunverulega máli og hvernig passar maður upp á að tíma sínum og athygli sé rétt varið með tilliti til þess? Hvernig er hægt að blanda saman innblæstri og aga, ástríðu og vönum? Hvernig tryggjum við að þær veldisvaxandi tækniframfarir sem við erum að verða vitni að þjóni okkur og okkar dýpstu hagsmunum, í stað þess að gera útaf við mannkynið? Hvernig tryggjum við að mannkynið taki rétta beygju á "Krossgötum Mannkyns"? Hvaða hlutverk getum við sem einstaklingar spilað í þessari stóru mynd?
Þetta eru spurningar sem veita mér orku, og þegar ég ákveð að skrifa um þær á íslensku þá endar það einhverstaðar á þessari síðu.
### Vinnan mín
**Virk verkefni:**
1. **[[Noona Labs]]** - Noona og Noona HQ
2. **[[Miklihvellur]]** - Fjárfestingarfélag
**Eldri verkefni:**
1. [[Nomo]]
2. [[Lucky League]]
3. [[Study Cake]]
**Annað sem kemur stundum upp:**
1. Tveir Morfís titlar fyrir hönd Verzló, einn sem ræðumaður og annar sem þjálfari
2. Þrisvar á forsetalista í Verkfræðideild HR
3. Verkfræði drop-out
### Tengjast?
Ef eitthvað sem þú finnur hérna inni vekur forvitni þína og fær þig til að vilja tengjast, ekki hika við að hafa samband:
1. @k_thorisson á X og Instagram
2. Linkedin
3.
[email protected]
---
![[D3C8A472-9D29-4A69-8AC5-CE446CC525CE_1_105_c.jpeg]]
Ég og ástin í lífi mínu, Rán Ísold Eysteinsdóttir ❤️