Nomo var fyrsta fyrirtækið sem ég stofnaði og ástæðan fyrir því að ég lærði að forrita.
Markmið Nomo var að verða "Kringlan á netinu", eða markaðstorg fyrir íslenskar fataverslanir. Árið var 2013 og flestar fataverslanir voru ekki með sínar eigin heimasíður, og hvað þá vefsölusíður.
Ég stofnaði Nomo með Viktori Margeirssyni og Jóni Hilmari Karlssyni, tveir miklir meistarar og góðir strákar.